Jæja þá kom að því að eitthvað nýtt fæðist á þessari síðu, enda tími til kominn.
Frekar lítið um að vera í mínu lífi þessa dagana, er úti alla daga í vinnunni vegna þessarar blíðu sem er búin að vera undanfarið (mætti þó sleppa þessum kalda blæstri sem yfirleitt fylgir með....þá væri þetta algjört bongo).

Ég sem hef útlit hins sanna víkings, sem sé skjanna hvít, er meira að segja búin að ná mér í svolítinn lit (þá meina ég ekki þennan rauða).

Eftir morgundaginn er bara ein vinnuvika eftir og svo kemur frííííí

og það eru bara 10 dagar þangað til við förum til Minneapolis.

Vandinn með að fara núna til Minneapolis er að ég veit ekki hvaða fatastærð ég á að kaupa, á ég að kaupa það sem passar á mig núna eða eitthvað aðeins minna með von um að mér takist að hrista af mér þetta andsk.... spik sem ákvað að taka sé bólfestu á mér.

Er að reyna að vinna í þessu og stend mig yfirleitt alveg ágætlega hvað varðar minnkun á nammiáti og áti almennt en engin árangur hefur komið í ljós ennþá. Er að reyna að koma mér í að hjóla er búin að fara nokkrum sinnum en þarf að vera duglegri.

Svona í lokin verð ég að setja inn frétt sem var í Fjarðarpóstinum (
http://www.fjardarposturinn.is/) í dag....
"Það er skammt stórra högga á milli hjá lögreglunni í landinu þegar kemur að því að fanga dýr sem ganga laus um jarðir og bæi. Allir vita af verkefni lögreglunnar á Sauðakróki í vikunni þegar reynt var að fanga ísbjörn á Hrauni á Skaga. En það vita ekki allir að lögreglumenn í Hafnarfirði fengu ekki síður erfitt verkefni í gærkvöldi þegar tilkynning barst um hænu á gangi í miðbæ Hafnarfjarðar. Ekki var þó viðbúnaðurinn eins mikill og á Hrauni á Skaga og ekki þurfti að leita til danskra dýrafangara í þetta skiptið. Lögreglumenn á lögreglubifreið fóru á staðinn og hófu eftirför á eftir hænunni, en hún var ekki samstarfsfús í fyrstu og lét ekki ná sér frekar en björninn. Hænan gafst þó upp að lokum og var flutt á lögreglustöðina til viðtals. Ekki fékkst uppgefið hvert erindi hænunnar var í miðbæ Hafnarfjarðar eða hvernig hún komst þangað en málið er í rannsókn."
Þetta er dæmi um mjög skemmtilegan fréttafluttning.

Vona að þetta standist reglur um heimildanotkun
kveðja Berglind Kristín